...og kúlubúinn alveg hættur við að mæta held ég....
Ég hélt sem sé að ég væri að fara af stað á aðfaranótt laugardagsins og var í sambandi við mömmu þannig að hún þorði ekki öðru en að koma til að vera hjá "litlu" stelpunni sinni

. Ég fór upp á spítala, í mónítor og það réttt náðist ein hríð og búið þannig að ég var bara send heim, bara með 2 í útvíkkun, tók því rólega á laugardaginn enda hafði ég nú ekki sofið mikið um nóttina

Og mamma dekraði við mig, og audda Sæmi líka

Í gær fórum við mamma svo á flakk ég var alveg á því að labba allt af stað aftur, en það gekk ekkert, fékk nokkra verki og búið. Þannig að mamma ákvað bara að fara heim aftur. En það var voða gott að fá hana, en Goggi var pínu spældur að komast ekki til Reykjavíkur

hann er svo mikið krútt
Það er sem sagt frekar lítið að gerast, fæ verki annað slagið, en Arndís systir er alveg viss um að krílið komi í dag...
Við sjáum hvað setur
Bless í bili
Allir að senda mér hríðastrauma takk